Færsluflokkur: Dægurmál

Sömu fréttirnar...

Væri ekki tilvalið að hvíla okkur á "sömu" fréttunum í fjölmiðlum sem birtast dag eftir dag og fylgjast bara með þeim t.d. annan hvern dag. Mánudag / miðvikudag / föstudag. Er það ekki nóg. En nokkuð nýtt að gerast ?

Ég las það einhvers staðar að starfsmenn í Máli og Menningu hefðu þannig fyrirkomulag að það mætti ekki ræða um peningamál á ákveðnu svæði á ákveðnu tímabili. Fá smá frið í vinnunni - mér líst vel á það. Þetta er orðið svoltið mikið. Það er ekkert í fréttum annað en þetta peninga ástand. - Taka breik...Shocking


Hugmynd...

Er ekki alveg tilvalið fyrir okkur Íslendinga að selja (flest) öll málverkin sem hengu uppi í Bönkunum. Má þannig ekki fá einhverjar Evrur, já eða Pund til að laga hallann aðeins. Eru þetta ekki um 5.000 verk. ? Ef hægt er að fá ..  ja hálfa milljón (vera hóflega bjartsýnn)  fyrir hvert verk þá gerir það dágóða upphæð. Er ekki óþarfi að vera með öll þessi verk uppi. ? Koma þau sér ekki betur bara uppi á vegg hjá þeim sem hafa efni á að eiga slík verk - kannski Rússneskir auðmenn... Var bara að spá....
mbl.is Málverk seldist á milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytt Björk...

Svakalega hefur Björk okkar breyst (i útliti) Varla að maður þekki hana með þessi rosalegu stóru gleraugu. Klippingin er líka eitthvað sem ég tók eftir. Miðað við myndina sem fylgdi fréttinni er hún þ.e.a.s. Björk með einhvern Kínverskan blæ á sér, gleraugun - klippingin og já Maó skyrtan FootinMouth
mbl.is Róttæk endurskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opna veitingastað...

Væri ekki alveg tilvalið að opna þarna "underground" skemmtistað.  Það færi vel um nokkur hundruð manns þarna. 
mbl.is Leynigöng til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vissi þetta alltaf...

Þessi vissi ég - gamli plötusnúðurinn -

Maður spilaði Áströlsku Bræðurna fram og til baka í Sjallanum í gamla daga - Þeir eru svo góðir - fyrir hjartað HeartHeart  Mæli með Bee Gees.


mbl.is Bee Gees hollir hjartanu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki full þörf á...

Þarf ekki að fara taka betur á öllum þessum ofbeldismönnum sem ráðast á íslensku lögregluna. Það er full þörf á að fjölga í lögreglunni, þessi heimur fer versnandi. En slæmt er ef að þessir lögreglumenn sem lenda í útistöðum við ofbeldinsmenn vilja ekki kæra þá vegna hræðslu. Ekki myndi ég vilja vinna sem lögrglumaður við núverandi aðstæður, þar sem gerendur svífast einskis. Þessir ofbeldismenn bera enga virðingu fyrir öðrum, og lögreglumenn eins og aðrir lenda í klóm þeirra.

Hvaðan voru þeir ? Kannski útlendingar. ?  


mbl.is Fólskuleg árás á lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvöfalt öryggi ...

Við getum óskað okkur öllum til hamingju með langþráðann draum. Þessi tvöföldum stóreykur öryggið.  Þetta er heldur betur glæsilegt.

Núna í vikunni sá ég að byrjað er að breikka á Suðurlandsveginn, milli Hveragerðis og Selfoss. Það lofar góðu.  


mbl.is Nýr kafli á Reykjanesbraut tekinn í notkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir af þessu...

Var á ferðinni og tók nokkrar myndir á Gemsann.

181020082372   181020082373

 

 

 

 

 


mbl.is Harður árekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta farið að gæta alls staðar...

Voðalega er fólk orðið "tensað" Á ekki bara að setja fleiri landamæraverði á alla flugvelli í Bretlandi og snúa öllum íslendingum til baka ef þeir dirfist að heimsækja Bretlandseyjar. - Hvernig endar þetta....
mbl.is Úthýst vegna þjóðernis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umbúðir...

Umbúðir selja - það er vitað mál. En það er lágmark að merkja allar vöru skv. innihaldi hennar.

Nú er búið að merkja alla sígrettu pakka með áberandi aðvörum - "Sigrettan drepur"  og önnur stór orð. Af hverju ætti ekki líka að setja merkingar á t.d. majónessið - það drepur, allar sósur ofl.

Hvað með sælgæti. Hvað með að merkja alla sælgætisbarina.
Slagorðið gæti verið á þessa leið: "Sælgæti gæti gert þig feitan/feitann - Offita drepur".  -

Ég er ekki að grínast með þetta. Setjum ábendingar á standana til þess að koma í veg fyrir offitu hjá ungu fólki já og unglingum og jafnvel fullorðnum.


mbl.is Umbúðirnar skapa matinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Kem til með tjá & tuða um það sem mér býr í brjósti í það og það skipti.

Höfundur

Pálmi Guðmundsson
Pálmi Guðmundsson

Er Akureyringur í húð og hár og starfa m.a. við námskeiðahald. Er með vefsíðuna www.ljosmyndari.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

239 dagar til jóla

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 181020082373
  • 181020082372
  • _DSD8672
  •  DSD5099
  • _DSD6419

KÖNNUN

Átt þú stafræna myndavél ?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 30579

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband