Færsluflokkur: Dægurmál

Aldur skiptir ekki máli...

Aldur er afstætt hugtak. Fólk getur verið ungt í anda, þó svo að það sé komið á háan aldur. Fyrir nokkrum dögum var ég með hóp nemenda á ljósmyndanámskeiði hjá mér. Elsti nemandinn var fæddur 1929, 79 ára að aldri. - Það sást ekki á honum, hress, jákvæður og með þessa flottu  myndavél. - Reyndar var hann með dýrustu og bestu vélina í hópnum. Smile

Kannski að nefna það í leiðinni að það var 13 ára stúlka á námskeiði hjá mér um daginn, þannig að ljósmyndanámskeið er fyrir alla aldurhópa. 

Ég spurði hann í lok tímans hvort að hann væri eitthvað að fást við að fikta í tölvum. Já það held ég nú, sagði hann snöggur og meira segja líka í Photoshop !  Þetta þótti mér gaman að heyra, að svona fullorðið fólk séu ekki hrædd við þessi (nýju) tækni og þori að fikta.

Ég veit um margt fólk sem er komið hátt á sextugs aldurinn sem hefur ekkert komið við lyklaborð og kann ekkert á "þessar tölvur" vill ekki sjá þetta...Angry

Sjá nánari uppl. um námskeiðin á www.ljosmyndari.is   þar er einnig hægt að sjá umsagnir nemenda.


Hvaða hvaða...

Þarf að boða til blaðamannafundar út af þessu litla máli. Manni bregður ekkert við að heyra fréttir af einhverju dóp máli - það er að gerast í hverri viku, því miður. En að blása í lúðra og boða til blaðamannafundar - það hlýtur að vera stórmál í uppsiglingu...

Ágætis vinur íslenskur vinur minn (sem nú er látinn) bjó í Frakklandi lengi vel, kom til Íslands fyrir nokkrum árum og fletti Degi,(dagblað sem gefið var út á Akureyri fyriri nokkrum árum)  svona að gömlum vana. Þar var aðalfréttir "bíll keyrði á lamb" Hann sagði að þetta væri ekki frétt. Það eru framin fjölmörg morð á hverjum degi í París, án þess að því sé blásið upp í blöðunum. 

Dautt lamb, SÓ..

Gat ekki íslenska lögreglan tekið nokkrar ljósmyndir af dópinu og sent til fjölmiðla og einhvern "staðlaðann texta" þar sem kemur fram: hvar og hvenær dópið fannst, hversu mikið magn og verðmæti (og þá í Evrum) - Gera mál úr svona.  - Það er e.t.v. smá hvíld fyrir mjölmiðlamenn að fá að skrifa um annað en peninga, þessa dagana...


mbl.is Umfangsmikil fíkniefnaframleiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hollt og gott ...

Nú er tækifæri fyrir okkur Íslendinga að fara að neyta meira af þessum hollum og góðum ávöxtum sem vaxa hér á landi. Einnig þurfum við að borða meira af íslensku grænmeti.

Þá um leið erum viðað styrkja innlenda framleiðslu, spörum gjaldeyrinn og minnkum kostnað. Væri ekki best að "Ríkið" sæi alfarið um landbúnaðarframleiðslu og væri þá með besta fólkið í hverri grein í vinnu hjá sér. Launin væru a.m.k. trygg.  

Við getum verið okkur sjálfum nóg á flestan hátt, ef þessu er rétt stjórnað. Þurfum ekki að kaupa landbúnaðarvörur frá útlöndum.


mbl.is Ávaxtabíllinn hlýtur Fjöreggið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Noh ...

Hvað er að gerast í þjóðfélaginu ? Eitthvað stórmerkilegt hefur komið upp á. ? Kannski ný upplýst bankarán ? Bandit   Hvað veit maður.
mbl.is Lögreglan boðar blaðamannafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta minni mig á ...

Þessi frétt minnir mig á söguna af manninum sem skellti sér á skemmtistað fyrir mörgum árum og var með vín í glasi og þurfti að bregða sér á salernið og skildi eftir glasið. Hann skrifaði á miða "ég hrækti í glasið" og setti miðann við glasið. Þegar hann kom svo til baka sá hann að búið var að bæta texta á miðann "ég líka" Crying
mbl.is Þjófar varaðir við eitruðum hnetum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég væri alveg ...

Þetta er örugglega nokkuð verðmæt taska. Ég væri til í að bjóða í hana þar sem örugglega ýmislegt áhugavert er að finna í henni. -  Það ætti ekki að vera vandamál að greiða gjöldin fyrir hjúkrunardvölina fyrir þessa 96 ára gamla konu.  - En af hverju er ekki reynt að ná í flakið af Titanic, þessu frægast skipi sögunar, í seinni tíð. ?  
mbl.is Ferðataska með fortíð til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varið ykkur á....

Þessi  frétt var til þess að ég rifjaði upp atburði sem gerðust í ferð minni til Kanaríeyja, þegar ég mætti inn í ljósmyndabúð. Í versluninni störfuðu mest megnis Indverjar, sem buðu mér vöruna á sérstöku verði - bara fyrir mig - þennan dag.  Þetta kannast margir við. - Þessir sölumenn eru svo ósvífnir að selja ýmsar vöru á oft á tíðum hærra verði en hægt var að fá þær hér heima á Íslandi. - Einn þekktasti sölumaður á raftækjum á Kanaríeyjum er Harry - í verslun sem heitir FotoHarry - Hann kemur sér í mjúkinn hjá Íslendingum og verðið þar ekki alltaf það lægsta. -  Oftast fylgir ekki all með í "pakkanum" vantar stundum hleðslutæki og annað. - Rugl. ! Varið ykkur á þessum aðilum - ef þið ætlið að prútta, þá er ágætt að byrja andsk... nógu neðarlega....
mbl.is Rekin úr búð í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný útrás...

Þetta er bráðsniðugt. Er ekki líka hægt að senda hópinn til hinna Norðurlandanna og fá þannig meiri tekjur fyrir skólann. - Ný útrás. !  
mbl.is Björgunarsveitir í útrás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílík tilviljun...

Er þá ekki bara spurning þegar ófrískar konur panta flug að þá sé a.m.k. 1 læknir um borð. Er þetta ekki bara sjálfsögð þjónusta, þegar svona stendur á.  
mbl.is Fæðing í farþegaþotu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnum Jóhanni R. stuðning ...

Þegar dómsmálaráðherra opinberar það að búið sé að auglýsa starf sýslumannins á Keflavíkurflugvelli laust til umsóknar, þá er auðvitað verið að reka Jóhann. 

Hvernig væri að við styddum Jóhann í hans góða starfi með því að skrá sig á stuðningslista.

Þeir sem vilja styðja Jóhann R. Benediktsson áfram í starfi endilega skrifið ykkur hér inn:


mbl.is Embætti lögreglustjóra breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Kem til með tjá & tuða um það sem mér býr í brjósti í það og það skipti.

Höfundur

Pálmi Guðmundsson
Pálmi Guðmundsson

Er Akureyringur í húð og hár og starfa m.a. við námskeiðahald. Er með vefsíðuna www.ljosmyndari.is 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

223 dagar til jóla

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 181020082373
  • 181020082372
  • _DSD8672
  •  DSD5099
  • _DSD6419

KÖNNUN

Átt þú stafræna myndavél ?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband