Færsluflokkur: Dægurmál
1.9.2008 | 22:06
Þvílík vitleysa...
Þessar busavíglsur er mjög niðurlægjandi og ég skil ekki af hverju skólayfirvöld stoppi ekki þessa vitleysu. Hvaða tilgangi þjónar þetta ? Ég hef verið mikið á móti þessum fíflagangi. Hvar endar þetta ? Algjört rugl...
![]() |
Varað við busavígslum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2008 | 23:11
Milli lífs og dauða...og fékk ekki MOGGANN
Ég var í heila viku milli lífs og dauða, þ.e.a.s. í nýju og glæsilegu orlofsíbúð á Akureyri sem er staðsett milli Sjúkrahússins og Kirkjugarðsins. Útsýnið yfir Pollinn er mjög gott og þaðan gat ég fylgst eilítið með andarnefjum sem léku listir sínar. Þessi orlofshús eru staðsett við Sunnutröð.
Á leiðinni norður hringdi ég í Moggann og bað um að fá sent blaðið á uppgefið heimilisfang (þ.e.a.s. Sunnutröð), en það var ekki hægt þar sem Mogginn er ekki borinn út í "þetta hverfi" Það er svo langt að fara. En það má geta þess að Naustahverfi er þarna langt fyrir ofan og ég geri ráð fyrir því að áskrifendur fá moggann sinn þar. Ég er áskrifandi að Mogganum... ennþá...
Myndin er tekin úr Orlofshúsinu og sést niður Lækjargil og á Pollinn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.8.2008 | 22:50
Haustið er að koma og námskeiðin að hefjast...
Núna stendur yfir undirbúningur hjá mér á ljósmyndanámskeiðunum. Fyrsta námskeiðið á þessari haustönn er reyndar fullbókað en laus pláss á þau sem koma í kjölfarið. Nánari upplýsisingar um þessi ljósmyndanámskeið er á vefsíðunni www.ljosmyndari.is
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2008 | 14:06
Furðulegt að ...
![]() |
Króuðu þjófana af |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.8.2008 | 13:39
Nótt í Reykjavík
Til hamingju með daginn - aðeins 222 ára..
Reykjavík
(Ljósmyndari: Pálmi Guðmundsson)
www.ljosmyndari.is
![]() |
Til hamingju með afmælið, Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.8.2008 | 20:34
Stykkishólmur er fallegur bær.
Gömlu húsunum er vel við haldið og mjög skemmtilegt að mynda þau.
Stykkishólmur (Ljósmyndari: Pálmi Guðmundsson)
![]() |
Mikill erill í Stykkishólmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.8.2008 | 20:22
Ekki maður með mönnum nema ...
Las nokkuð skondinn og áhugaverðan myndatexta við mynd frá Sigmundi í Lesbók Moggans í dag (17/08/08)
Textinn var á þessa leið: " Vááá, þetta er sko æðisleg gleði, við ætlum sko bæði að vera hinsegin þegar við verðum stór, ég hommi og Sigga lesbía." Þar var mynd af 2 krökkum sem stormuðu inn til foreldra sinna og voru væntanlega að koma úr þessari "gleði göngu"
Það var verið að fjalla um þennan fjölda sem var í gleðigöngunni.
Það er ekki maður með mönnum nema að hann sé hommi. Þetta má skilja á a.m.k. tvo vegu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2008 | 19:34
Bæjarstjórinn kann þetta...
Hún stóð sig vel í grillinu...
Tekin á Blómastrandi Dögum í Hveragerði 16. ágúst 2008 (Ljósmyndari: Pálmi Guðmundsson)
![]() |
Þúsundir á Blómstrandi dögum í Hveragerði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2008 | 17:12
UFO...
Það á aldrei að segja aldrei...
Af hverju að útiloka þennan möguleika að það hafi sést til einhverrar veru utan að geimnum. Það eru margir (meira að segja hér á landi) sem hafa séð ljós á himni sem ekki hefur verið útskýrt. Hefur sögum af þessu tagi verið safnað saman af fólki sem trúir á fljúgjandi furðihluti, með Magnús Skarphéðinsson fremstan í flokki. Menn skuli ekki útiloka neitt.
![]() |
Fljúgandi furðuhlutir yfir Reykjavík? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2008 | 17:01
Verð fyrir 2...
Það er alveg merkilegt að alltaf skuli standa verð pr. mann miðað við 4 en ekki tvo þegar ferðaskrifstofurnar gefa upp verð á ferðum til útlanda. Á maður að þurfa að fara reikna út hvað það kostar pr. mann, með því að setja upp einhverja formúlu, þar sem krakkar hljóta að þurfa að borgra minna en þeir fullorðnu. Ég vil fá uppgefið VERÐ FYRIR 2
Frá ferðamannabænum MOGAN Gran Canary (ljósmyndari: Pálmi Guðmundsson)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Kem til með tjá & tuða um það sem mér býr í brjósti í það og það skipti.
Nýjustu færslur
- 21.1.2010 Snorri og ljósmyndanámskeiðið.
- 12.1.2009 Merkilegt...
- 12.1.2009 Hvaða lykt skyldi finnast hér...
- 21.10.2008 Um leyfi, hm...
- 21.10.2008 Nú förum við í stríð...
- 21.10.2008 Það er vonandi að ...
- 21.10.2008 Nú kæmu sér vel...
- 20.10.2008 Komust ekki alltaf á toppinn...
- 20.10.2008 Nú er lag...
- 20.10.2008 Daglegt brauð...
249 dagar til jóla
KÖNNUN
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar